Einu sinni var stákur, hann var í minna lagi og honum var strítt. Honum líkaði ekki vel við samferðafólk sitt. Það níddist á honum og var sífellt að láta hann verða sér til minkunnar. Ansi var hann orðinn þreyttur á þessu öllu saman, fólkið gerði að honum gys, hæddi hann og spottaði en enginn gaf sér tíma til að heyra hans hlið á málinu. Einn daginn ákvað hann að ef hann rysi ekki upp gegn ofríkinu og léti í sér heyra yrði hann kraminn undir ógnaþunga mannlegrar gremju og skammsýni. Vinur okkar ákvað því að ganga um götur bæjarins og gala svo hátt hann mátti. Hann gól og gargaði og lét fjöldan heyra hvað hann hafði að segja. Ekki fór það vel. Hann var grýttur með Þjóðviljanum og einstaka húsmóðir henti Ikea-bæklingi í hann þar sem hann hljóp skælandi meiningu sína eftir götum bæjarins. Nú var illt í efni. Vinurinn var enn sannfærðari um að eitthvað þyrfti hann að gera svo hann fór á námskeið hjá Nýja-Tölvuskólanum og lærði að verða netstjóri. Nú er hann hamingusamur og situr heima hjá sér eða í vinnunni sinni, þar sem hann stýrir litlu staðarneti, og skrifar Blogg sem mest hann má. Getur nú hver sem heyra vill lesið hans hliðar og hugmyndir um heiminn. Og þeir sem ekki hafa áhuga geta bara safnað Fréttablaðinu inn í geymslu hjá sér, þar sem Þjóðviljinn er látinn, og beðið spenntir eftir næsta gimpi sem vill láta í sér heyra.
Þakka þeim sem hlýddu.
Þakka þeim sem hlýddu.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home