thoragella

work it baby , work it, own it....

miðvikudagur, janúar 15, 2003

Lúði

Ég fór ekki í BP í gær né í leikfimi í morgun. Tvö refsistig. Málið er það samt ef ég má afsaka mig smá að ég fór í langan göngutúr í gær og var alveg búin eftir hann. Svo var ég næstum bara lasin í gærkveldi og í morgun var veðrið ógeðslegt. Veit veit ekki nógu góðar afsakanir enda er ég með móral dauðans. Ég verð þá víst að fara eftir vinnu í dag og bæta upp fyrir skrópið og mæta svo fersk í fyrramálið.

Arnar Steinn er kominn til landsins. Er í stuttri heimsókn frá Kína. Ég get ekki beðið eftir að fá að hitta hann, en það er víst svoldið mikið að gera hjá honum að hitta alla þannig að við verðum víst bara að bíða aðeins. Ætli við hittum hann ekki á morgun.

Ég er að fara spila í kvöld með stelpunum, það verður örugglega mjög gaman. Líst vel á partýspilið, heyrt mjög góðar sögur af því.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home