thoragella

work it baby , work it, own it....

þriðjudagur, janúar 07, 2003

Dugleg stelpa

Ég fór í leikfimi kl.6 í morgun!!!!
Ég er ekkert smá dugleg, nú er bara að halda þessu við og fara minnst 3x í viku!! Ég er orðin svoddan fitubolla að ég verð að fara gera e-ð í mínum málum. Skrítið samt hvað ég er löt við að fara og ætlaði ekki að geta farið í morgun en svo um leið og ég er mætt á staðinn og farin að hlaupa, þá er ég ekkert smá sátt. Skil jafnvel ekki af hverju ég geri þetta ekki á hverjum morgni því mér líður svo vel, bæði vegna þess að hafa hreyft líkaman minn svo lítiðog hvað ég er ánægð með sjálfa mig að hafa farið.

Una mín er orðin svo stór. Hún reynir að standa upp við hvert tækifæri, jafnvel við hreyfanlega hluti og þá fer nú oft illa. Svo fékk hún bíl í jólagjöf sem hún er farin að keyra um allt, auðvitað er ég að tala um leikfangabíl!! Ótrúlega sætt að sjá hana ýta sér áfram með löppunum, verst að hún er ekki alveg búin að fatta stýrið þannig að ég þarf alltaf að snúa henni við hahahhhah.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home