Gaman
Það voru að koma nýjar tölvur niðrí vinnu, mjög flottar. Nema það komu ekki nýir skjáir og núna eru þeir bara alveg fáránlegir. Allt voða nýtt. svart og flott en skáirnir hvítir og ógeðslega stórir! Nema besta við þetta er að núna get ég verið á msn!!! Sniðugt ha! Kom bara með í pakkanum, reyndar held ég að það hafi átt að eyða því út, en þar sem ég var komin inn í það er það enn inni hjá mér. Svo er e-ð nýtt kerfi líka. Ekki lengur Word og Exel heldur e-ð allt annað en lítur samt álíka út. Great nú þarf ég sem sagt að fara læra á e-ð nýtt kerfi, kunni ágætlega við hið eldra, en svona er þetta víst í tölvuheiminum.
Una mín er ennþá lasin. En sem betur fer er hún hætt að kasta upp. Alveg hrikalegt að horfa á hana engjast sundur og saman og geta ekkert gert nema haldið henni og huggað eftir á. Hún sefur samt ennþá illa og ég er nær svefnlaus líkt og síðustu nætur. Samt verra að þurfa að mæta í vinnuna svona skárra þegar maður getur lagt sig með henni á daginn og náð þá upp e-m svefni.
Jæja það er að koma kaffi hjá mér, ætla að fara og svolgra í mig eins og einum lítra.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home