thoragella

work it baby , work it, own it....

miðvikudagur, janúar 22, 2003

B.A ritgerð
Ég ætla að taka vikufrí úr vinnunni og einbeita mér að ritgerðinni minni eingöngu í eina viku. Vera að frá 8-17 og vinna vel allan tímann. Hversu ömurlegt væri það að taka sér frí til þess að gera ritgerðina og tíminn færi allur í súginn?!! Veit ekki hvort ég ætti að taka fríið núna í janúar -næstu viku eða í febrúar. Hugsa bara í febrúar. Ýta þessu aðeins lengur undan mér.

Una mín er með hita :-( Ætli það tengist ekki tanntöku, finnst það líklegast. Tjörvi er líka e-ð slappur, vona bara að við leggjumst ekki öll í pest, nenni því sko ekki.

Var með saumó í gær, alltaf gaman að hitta stelpurnar og gúffa í sig. Elísabet Una og Una Rán fengu að vera með og sýndu að þær eru gott efni í saumaklúbbskonur. Klukkan ellefu fór Una loksins að sofa enda orðin rangeygð að þreytu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home