thoragella

work it baby , work it, own it....

þriðjudagur, janúar 21, 2003

Vitlaus x2
Einmitt, um daginn mætti ég á vitlausum tíma í skólann. Nema svo kemur í ljós að ég mætti ekki aðeins á vitlausum tíma heldur líka vitlausum degi!! Þannig að mér hefur núna tekist að missa af tveimur tímum í röð og það besta er að það verður ekki annar tími fyrr en í vor! Sniðug ekki satt?

Hitti Hörpu í gær, hún er komin með voðalega fína bumbu! Hlakka mikið til að sjá hana vaxa og dafna. Svo ég tali nú ekki um að fá að sjá krílið! Þau eru að fara flytja á Bræðraborgarstíg þar sem þau voru að kaupa sér íbúð. Það er fjölskylduvænna umhverfi heldur en Laugavegurinn býst ég við.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home