thoragella

work it baby , work it, own it....

föstudagur, janúar 17, 2003

Fór í geggjaðan BP tíma í gær með Dagnýju. Besti kennari sem ég hef lent á skal ég segja ykkur. Ógeðslega skemmtileg þannig að ég var í kasti allan tímann.

Það er að koma helgi...... ííííí skemmtilegt. Er nefnilega ekki að meika að vera í vinnunni núna, langar obbóslega mikið heim!! Ekki það að hér sé ekki ágætt að vera, allt að koma til skal ég segja ykkur.

Hitti Arnar Stein á mánudaginn, mjög gaman að sjá hann loksins. Erum kannski að fara djamma með honum á morgun og ég hlakka barasta til. Reyndar er alveg á gráu hvað við erum að djamma mikið núna. En ætli ég eigi það ekki alveg inni.

Hmm klukkutími og korter eftir. Hlýt að halda það út.

Var að tala við IH, var að bjóða mér á mömmumorgun til Villu. Gaman gaman.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home