thoragella

work it baby , work it, own it....

miðvikudagur, janúar 29, 2003

Ungbarnasund
Mér finnst ungbarnasund æði. Sérstaklega framhaldsnámskeiðið. Núna er Una alveg með á nótunum og er hin hressasta. Svo svaf hún líka svo vel í nótt eftir átökin. Reyndar slær móðurhjartað nokkur aukaslög við og við þær hjartsláttatruflanir munu örugglega bara aukast með árunum. Betra bara að koma því í form í leiðinni. Í einni sýnikennslunni í gær (með ókunnugt barn nota bene) öskraði ég ósjálfrátt þegar barnið steyptist í kaf. Algjör lúði, en svo stuttu seinna var ég sjálf að láta Unu kasta sér ofan í vatnið af bakkanum.

Kærastar vinkvenna minna eru ótt og títt að tínast í þingframboð. Bæði Ágúst hennar Obbu og Gummi hennar GB eru nú komnir á lista, reyndar fyrir sitt hvorn flokkinn en það er betra að hafa þetta fjölbreytt. Þetta eru líka eðalmenn og gott að fá þá í landspólítíkina, eiga örugglega eftir að láta gott af sér leiða í framtíðinni.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home