thoragella

work it baby , work it, own it....

þriðjudagur, febrúar 18, 2003

Já ég hef ekkert bloggað lengi enda var ég í vikufríi til að vinna að B.A ritgerðinnin minni. Það gekk vel en ég er langt frá því að vera búin. Samt er ég orðin mjög þreytt á að vera bæði í skóla og að vinna. Vildi miklu frekar þar sem ég er vinn fulla vinna eiga tímann sem eftir er með Unu. En þessu lýkur vonandi öllu í júní!!

Una er byrjuð hjá dagmömmu og það gengur rosalega vel enn sem komið er. Reyndar með nettan móral en ég held að henni finnist bara gaman hjá henni. Allavegana var hún syngjandi og dansandi þegar Tjörvi sótti hana eftir klukkutímavist í dag.

Af hverju er svona erfitt að koma sér af stað í leikfimi jafnvel þótt ég viti að mér finnist mjög gaman og sé alltaf ýkt sátt þegar ég er búin? Skrítið ha?!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home