thoragella

work it baby , work it, own it....

föstudagur, febrúar 07, 2003

Þreytt
Svo þreytt meira að segja að ég barasta get ekki farið að spila með stelpunum í kvöld. Leiðinlegt að missa af því en náttfötin mín, sófinn og sjónvarpið voru bara meira fyrir mig í kvöld.

Er að byrja í vikufríi, ætla mér að vinna eins mikið og mögulegt er í B.A ritgerðinni minni, til þess er fríið tekið. Ætla meira að segja byrja á morgun. Hlakka nú ekki til, en þetta verður að gerast.

Tjörvi er að svæfa Unu Rán núna, ég hreinlega get það ekki. Maður þarf að halda henni alveg kyrri og mér er það ekki fært. Hún sleppur alltaf frá mér og um leið er hún staðin upp og þar með sloppin. Þá reyni ég að taka hana uppí en það er alveg sama sagan. Þá kalla ég á Tjörva og hann reddar málunum. Greyið samt, alltaf þarf hann að svæfa. Ég get þetta svona endrum og eins en ég verð að fara taka mig á í þessu þar sem ég verð að svæfa hana þegar hann fer á næturvaktir.

Það verður mikið að gera í barnaafmælum um helgina. Á morgun förum við til Magnúsar Bjarka og á sunnudaginn verðum við sjálf með afmæli þar sem Óðinn Páll á afmæli í dag, orðinn 9 ára kallinn.

Á eftir að horfa á M.J þáttinn, hey kannski að ég geri það bara núna......

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home