thoragella

work it baby , work it, own it....

mánudagur, apríl 14, 2003

Páskar

Um páskana verð ég að vinna og læra. Ritgerðin skríður áfram svo að ég ætla að ná mér í nokkra yfirvinnutíma á rauðum dögum um páskana. Una verður í pössun hjá tengdó og ætla þau að skella sér norður á laugardaginn og taka Unu mína með sér. Ég kvíði svolítið fyrir þótt ég viti alveg að það sé ástæðulaust.

Tjörvi verður líka að vinna að venju svo að næstu mánaðarmót ættu að verða ágæt ;-) vona allavegana að þau verði betri en þau síðustu.

Á miðvikudaginn stefnir allt í mikið djamm. Bæði pálína og kokteilkeppnin fræga á Bárugötunni. Ég ætla þó ekki að drekka enda mikið sem ég þarf að gera á skírdag.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home