thoragella

work it baby , work it, own it....

miðvikudagur, febrúar 26, 2003

Hátta klukkan átta
Jamm svæfði Unu kl. 8 í gær og sjálfa mig í leiðinni. Hrikalegt að missa alveg af kvöldinu. Reyndar er ég vel sofin núna og það er mjög gott. Tjörvi greyið beið og beið eftir að ég kæmi fram en það varð ekki úr. Bæti honum það bara upp í kvöld. Vorum búin að plana að fara í pottinn og hafa það gott en svo hraut ég barasta.

Það eru bara að koma mánaðarmót! Gaman að því. Afmælið hennar Unu Ránar nálgast óðfluga, kannski að maður ætti að byrja baka og frysta ;-)

Jæja best að fara vinna núna.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home