thoragella

work it baby , work it, own it....

þriðjudagur, júlí 16, 2002

Við erum allar snilldarmanneskjur og líka Jo M. Gaman að taka svona próf- sniðugt líka að geta sett niðurstöðurnar inn á bloggið. Ég sting líka upp á að við hittumst allar 3 þegar Ásta kemur heim og horfum á Little Women- á hana á spólu. Sameinumst um karekterinn okkar og grátum aðeins.

Ég og Tjörvi eigum 2 ára brúðkaupsafmæli í dag og Anna og Styrmir eiga 2 daga brúðkaupsafmæli í dag- sniðugt ekki satt?!! Hittum einmitt nýgiftu hjónin í Kringlunni í dag, þau voru alveg geislandi af hamingju og gleði. Gaman að vera nýgift- reyndar er líka gaman að eiga bómullarbrúðkaup og góðan mann sem kann að elda góðan mat handa mér þegar tilefni er til.

Við erum að fara í skírn til Una hennar GB á föstudaginn. Ég er orðin mjög spennt að vita hvað prinsinn á að heita. Líka gaman að fá að vera með þegar hann er skírður og sjá stoltan afann skíra afakrílið sitt.

Jæja best að skríða uppí til Unu minnar svo að ég verði ekki of þreytt að sinna henni á morgun.
Respect

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home