thoragella

work it baby , work it, own it....

fimmtudagur, mars 06, 2003

Kvef
Ég er kvefið og shit hvað það er pirrandi. Hnerra út í eitt og fáránlega nefmælt.

Unsan mín er ekki alveg nógu sátt núna hjá dagmömmunni. Mér líður ömurlega. Ég vona að það gangi betur í dag en í gær. Við ætlum að hafa hana stutt í dag og næstu daga og ath hvort hún jafni sig. Litla snúslan mín ekki alveg nógu hamingjusöm þessa dagana. Reyndar spilar örugglega inní eyrabólga og svefnleysi en það gerir ástandið ekkert betra.

Við fengum sendinguna góðu heim að dyrum og í gær var tekið á því. Pöntuð pizza og legið yfir Friends allt kvöldið. Snilldar þættir, svo er svo gaman þegar maður lendir á þætti sem maður hefur ekki séð áður eða man ekkert eftir. Ætli helgin fari ekki bara í þetta.

Allt á fullu í vinnunni. Gamla fólkið að koma og fá hjálp með skattaframtalið. Snúllur margar hverjar en hrikalega leiðinlegt þegar það er að kvarta út í eitt yfir sjúkdómum og hrörleikum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home