thoragella

work it baby , work it, own it....

föstudagur, mars 14, 2003

Tralala

Ég er að fara á árshátíð, la la la ala la. Gaman, förum á morgun og verðum meira að segja með hótelherbergi. Árshátiðin er sko í Keflavík og Hótelið bauð svo góðan díl að við barasta tímdum ekki að sleppa því.

Sigrún, sem ég er að vinna með ætlar að gera neglurnar mínar voða fínar og svo verð ég að fá Tjörva til að slétta á mér hárið hehe. Kjóllinn er kominn í hús og þá er bara eftir að redda sokkabuxum.

Una ætlar að fá að vera hjá Arnrún og þær eiga örugglega eftir að skemmta sér vel saman. Á sunnudaginn á ég samt líklegast eftir að vera komin með nettan aðskilnaðarkvíða og drífa mig heim. En það er bara hollt.

Ég var að skoða hótel í Barcelona... mig langar svo rosalega mikið út í sumar. Kannski ef við verðum rosalega dugleg að spara að það sé möguleiki. Við eigum nú líka eftir að fara í brúðkaupsferðina og svona.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home