thoragella

work it baby , work it, own it....

miðvikudagur, desember 22, 2004

Jólin koma, jólin koma.

Já þá eru jólin bara á næsta leiti og jólafríið mitt líka. Fer í fríið eftir nákvæmlega 2 klukkutíma. Ætla að taka mér frí bæði á Þorláksmessu og þriðja í jólum, aðeins að lengja helgina.

Ég er að vinna í því að gera Unu spennta fyrir jólunum, þá aðallega pökkunum. Lauma því að hjá henni að við pabbi hennar séum búin að kaupa gasalega fínan pakka handa henni ehhehe. En hún snýr oftast umræðunni e-ð annað og lætur þetta sig litlu varða. Þetta er einmitt málið með mig, ég á mjög erfitt að geyma pakka langar alltaf að gefa þá bara strax. Ekkert gaman að liggja á þeim þegar þeir eru hvort eð er komnir í hús. Oft er ég æstari að gefa Tjörva t.d. afmælisgjöfina en hann að fá hana, vill bara fá hana á afmælisdeginum, erfiður bransi.

Ég fæ gæsir að borða á jólunum, vön að fá hamborgarahrygg. Þessi jól verða hvort eð er öðruvísi en þau hafa verið hingað til þannig að það er alveg eins gott að umturna þeim alveg. Eftir svona eitt til tvö ár hugsa ég að jólin verði bara haldin hjá okkur, förum ekki neitt og getum þá bara mótað okkar hefðir.

Annars finnst mér kyrrðin oft það besta við jólin. Þá er ég að tala um kyrrðina á aðfangadagskvöld þegar flestir eru að gera sig klára fyrir matinn og snemma á jóldag. Reyndar er Una að bjarga mínum jólum gerir þau margfalt skemmtilegri.

Gleðileg jól!

4 Comments:

  • At 22. desember 2004 kl. 14:19, Blogger Guðrún Birna said…

    Ég er einmitt alveg á því að þessi kríli séu jólin - ekkert annað!
    Knús og kossar,
    GB
    P.s. svo verða það gamlárs our style innan fárra líka -er það ekki?

     
  • At 22. desember 2004 kl. 14:20, Blogger Guðrún Birna said…

    Gleymdi að segja... gott að sjá þig blogga aftur sæta mín :-)

     
  • At 6. janúar 2005 kl. 12:49, Anonymous Nafnlaus said…

    Mín bara í bloggstuði fyrir jólin :)
    Ekkert smá cool ;)
    Já við munum sennilega næst halda jólin hér heima hjá oss. Þá verður orðið svo margt um manninn :) Hihi.
    Sjáumst sem fyrst,
    Anna litla.

     
  • At 9. ágúst 2005 kl. 11:51, Anonymous Nafnlaus said…

    If you are alone, call this number 800-211-9293. Connect with Real Singles from your local area instantly for only $0.99/min with a $4.99 connection fee. A true Match is only one phone call away 800-211-9293. Meet people with common interests and desires now. Check it out. 800-211-9293

     

Skrifa ummæli

<< Home